Skilmálar
Síðast uppfært: 5.11.2026
1. Fyrirtækjaupplýsingar
Vefverslunin Glass er rekin af Kútflutningar sf.
Kennitala: 460720-2220
VSK númer: 138429
Skrifstofa: Eyjaslóð 5, 101 Reykjavík
2. Verð og greiðslur
Öll verð á vefnum eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og eru með inniföldum 24% virðisaukaskatti. Við áskiljum okkur rétt til að breyta verðum fyrirvaralaust, en verðið sem þú sérð þegar þú staðfestir pöntun í körfu er að sjálfsögðu það verð sem gildir fyrir þín kaup.
3. Afhending og sending
Frí heimsending: Við sendum allar okkar vörur frítt í næsta póstbox eða á pósthús um land allt. Afhendingartími: Þar sem sjóngler eru sérsmíðuð nákvæmlega eftir þinni sjónmælingu tekur framleiðsla og sending yfirleitt 7–10 virka daga. Fyrir vörur sem ekki þarfnast sérsmíði (eins og sólgleraugu án styrks) getur afhendingartíminn verið styttri.
4. Skilaréttur
Við viljum að þú elskir nýju brillurnar þínar og sjáir heiminn í háskerpu.
- Sjóngleraugu (30 dagar – Ein frí skipting): Sjóngler eru sérsmíðuð nákvæmlega fyrir þín augu og því getum við ekki tekið við þeim til endurgreiðslu. Hins vegar bjóðum við upp á eina ókeypis skiptingu innan 30 daga frá því að þú færð gleraugun í hendurnar. Ef umgjörðin smellpassar ekki, eða sjónstyrkurinn reynist ekki nákvæmur, þá smíðum við nýtt par fyrir þig frá grunni – eða veitum þér inneign í vefversluninni.
- Sólgleraugu og vörur án styrks (14 dagar): Fyrir vörur án sérsmíðis gildir hefðbundinn 14 daga skilaréttur. Skilaðu vörunni og við endurgreiðum þér kaupin að fullu.
Það sem þarf að hafa í huga við vöruskil: Vörur þurfa að koma til baka í upprunalegu ástandi, ónotaðar og í sínu hulstri. Viðskiptavinur ber sjálfur kostnað af því að senda vöru til baka, en það er líka velkomið að koma og skila frítt á skrifstofu okkar á Eyjaslóð 5.
5. Ábyrgð og gallaðar vörur
Ef gleraugun þín reynast gölluð eða verða fyrir hnjaski í flutningi, endilega sendu okkur línu á glass@glass.is eins fljótt og auðið er (helst innan tveggja daga frá móttöku). Við bætum að sjálfsögðu gallaðar vörur þér að kostnaðarlausu – hvort sem er með viðgerð, nýrri vöru eða fullri endurgreiðslu.
6. Trúnaður og persónuvernd
Við förum með allar þínar upplýsingar sem algjört trúnaðarmál. Sjónstyrksupplýsingar, nafn, netfang og heimilisfang eru eingöngu notuð til að smíða og senda þér vöruna. Við seljum aldrei eða deilum þínum upplýsingum til þriðja aðila.
7. Lög og varnarþing
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Glass og kaupanda skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.